Aðalbjörg Runólfsdóttir
Ég heiti Aðalbjörg Runólfsdóttir.Ég hef verið að prjóna mjög lengi. Ég lærði ung að prjóna en fór ekki að prjóna neitt að ráði fyrr en eftir tvítugt. Ég átti og rak Hannyrðaverslunina Skrínan frá 2004 til 2010. Ég hélt nokkur námskeið á þessum tíma, aðalega fyrir byrjendur. Eftir það hef ég oft óskað þess að það væru fleiri klukkutímar í sólarhringnum.
Í dag vinn ég hlutavinnu í Ullarversluninni Þingborg. Ég tel mig geta prjónaðar næstum hvað sem er. Uppáhaldsprjónaverkin mín eru sokkar og vettlingar

Alice Sowa
Alice Sowa er belgísk/amerísk textíhönnuður og rannsakandi. Hún kemur frá Kaliforníu, en hefur búið á Íslandi síðustu fjögur ár og rekur vinnustofu í Öræfum, þar sem hún nýtir innlend hráefni í vefnað og prjón. Nú vinnur hún að rannsókn á leiðum til að breyta ágengri plöntu eins og lúpínu í textíl auðlind, um leið og hún vinnur að þróun Ullarköggla, sem er frumkvöðlaverkefni um jarðvegsbæti. Alice er framsækin, forvitin og hefur með skapandi hugsun sinni einblínt á leiðir til að stuðla að endurnýjun textíls og að sjálfbærum samfélagsverkefnum.

Snow Princess and Mountain Man
Snow Princess er hekl hönnuður og keppti fyrir Ísland á Norðurlandamótinu í búningum árið 2024 í búningi sem hún gerði sjálf. Mountain Man er útivistarunnandi og hefur dálæti á öllu sem tengist ull. Saman hafa þau glatt börn um allt Ísland með sögusögnum og leik, og nú koma þau með ást sína á handverki á ullarhátíðina til að leiðbeina ungum ævintýramönnum í gegnum fyrstu hekllykkjurnar.

Guðrún Bjarnadóttir
Guðrún Bjarnadóttir er náttúrufræðingur að mennt. Hún jurtalitar band samkvæmt gömlum hefðum en notar til þess nútímatækni td. rafmagn þó aðferðirnar séu þær sömu í grunninn og áður fyrr.
Guðrún byrjaði að lita þegar hún skrifaði MS ritgerðina sína um grasnytar á Íslandi en jurtalitun er eitt form af grasnytjum en þá fann hún gamlar heimildir um litun sem vöktu áhuga hennar. Guðrun er alin upp í mikilli handverkshefð en mamma hennar var handavinnukennari og amma hennar kenndi henni að þekkja jurtirnar og nýta þær. Guðrún Rekur jurtalitunarvinnustofuna Hespuhúsið við Selfoss þar sem gestum gefst kostur á að kíkja í litunarpottana og fræðast um gömlu litunarhefðina.

Helga Thorodssen
Ég heiti Helga Thoroddsen og er prjónhönnuður en elska líka allt sem viðkemur textíl og textílvinnu.
Ég er með meistaragráðu frá Colorado State University með sérstaka áherslu á íslenska ull, eiginleika hennar og úrvinnslu auk þess að vera með B.Ed. gráðu ú handavinnu frá Kennaraháskóla Íslands.
Mitt uppáhalds er að hanna peysur og ég elska að vinna með íslenska ull allt frá reyfi að fullunninni flík.

Hulda Brynjólfsdóttir
Hulda Brynjólfsdóttir er Spunasystir sem fór alla leið með spunann; hætti sem kennari og opnaði ásamt Tyrfingi manni sínum fyrstu smáspunaverksmiðju landsins; Uppspuna.
Uppspuni er staðsettur í Lækjartúni á Suðurlandi. Hulda og Tyrfingur búa með nautgripi og sauðfé og spinna garn heima á bænum úr ull af kindunum sínum. Fólk getur líka komið með ull til þeirra og fengið hana spunna í band að eigin óskum. Hulda rekur litla verslun fyrir ofan spunasalinn og selur þar garnið sem hún spinnur í náttúrulegum litum sauðkindarinnar og litar sjálf þá liti sem kindin gefur ekki.

Kathy Schneider
Ástríða Kathy fyrir trefjalist hófst í barnæsku, allt frá prjóni til perlugerðar (e. bead work).
Hún jók síðar þekkingu sína og lauk meistaraprófi í spuna frá Olds College árið 2018, þar sem hún lauk ítarlegri rannsókn á Navajo Churro sauðfénu.
Með bakgrunn í menntun kennir hún nemendum á öllum aldri og leiðbeinir þeim frá hráum trefjum til fullunninnar vinnu. Sem virkur félagsmaður sýnir hún og kennir á svæðisbundnum viðburðum, þar á meðal ullarmarkaðnum í Estes Park, Taos ullarhátíðinni og meistaraspunanáminu við Olds College.

Kathy Sparks
Kathy Sparks, The Hand Maiden, fagnar fimmtíu árum sem tefjalistamaður.
Hún býr í mið-vestur Bandaríkjunum (Indiana), hún er hætt að kenna vísindi á háskólastigi og núna einbeitir hún sér að rannsóknum við hefðbundna trefjalist, þá sérstaklega að lita með náttúrulegum efnum.
„Allt sem ég framleiði er handgert, með því að nota efni úr heimabyggð eða ræktað á mínum sveitabæ. Þegar einhver notar garn frá mér, eru þau með vöru í höndunum sem er full af náttúrulegum lit sem er ræktaður á staðnum og búinn til með innblæstri frá náttúrunni.“
Námskeið hjá Kathy hafa verið vinsæl, hún hefur kennt spuna, vefnaðar og prjóna námskeið út um allan heim. Sem ræktandi Connemara-hesta, heldur hún áfram að þjóna ræktunarfélaginu sem formaður skoðunaráætlunarinnar. Kathy er amma þriggja virkra ungra drengja og er höfundur þriggja bóka, þar á meðal The Song of the Muskox sem fjallar um uppáhalds trefjar hennar – Qiviut.

Kristjana Kona
Ég lærði að hekla árið 2010 og kolféll fyrir því strax á fyrsta degi. Mér finnst sérstaklega skemmtilegt að hekla körfur. Það er tilvalið að geyma handavinnudótið í fallegum körfum í stofunni heima.
Ég nýt þess mest að vinna með náttúrulegt hráefni og hekla allar mínar körfur úr ull.
Ég útskrifaðist úr grunnnámi í textílkennslu við HÍ og hef síðustu ár haldið fjölda handavinnunámskeiða á eigin vegum í gegnum Hringlandi, sem ég stofnaði í fyrra fæðingarorlofinu mínu árið 2018. Ég hef mjög gaman að því að að sjá handavinnuneistann kvikna hjá fólki og verða vitni af því þegar nýtt áhugamál fæðist.

Laura Spinner
Laura Senator, einnig þekkt sem Laura Spinner, er barnalæknir og þráð listakona frá Rainbow Twist Shop (sem er á Etsy).
Hún býr í New Jersey í Bandaríkjum Norður-Ameríku. Hún er þekkt fyrir skapandi spuna og litríkt handlitað band og hefur kennt á námskeiðum og smiðjum í bæði bandaríkjunum og á íslandi. Hún er heiðurs Spunasystir.

Leslie Anne Meyer
Leslie Meyer er trefjalistakona frá Seattle í Washington-fylki í Bandaríkjunum. Hún vinnur nú að prjónaðri fatalínu innblásinni af íslensku og norrænu landslagi.
Með íslenska ull sem grunn prjónar hún frá innsæinu, án mynstra eða prjónfestu. Hún sækir innblástur frá minningum, ljósmyndum og myndböndum í verkin sín sem hún breytir í list sem er hægt að ganga í eða hengja upp á vegg.
Henni er heiður að kenna á Íslensku Ullarvikunni í fyrsta skipti í haust.

Elísabet Sörensen
Ég naut mín vel í allri handavinnu strax í skóla og þegar kom að því að velja háskólanám þá fór ég í Textíldeild KHÍ og lauk þaðan kennaraprófi árið1996. Áfram hélt ég að bæta við mig þekkingu og árið 2025 lauk ég vefnaðarnámi frá Laugets vævekurser í Danmörku. Í dag er ég fyrst og fremst vefari og vefnaðarkennari. Ég er með vinnustofu – Þræðir Textílsetur þar sem ég kenni vefnað og vinn að minni listsköpun.

Liz Gaffney
Liz Gaffney er blómaskreytir að mennt sem hefur gefið henni mikla kunnáttu í grasafræði og hefur átta ára reynslu af því að þróa nýjar aðferðir. Hún er líka mikið í því að þæfa og rækta sínar eigin jurtir til þess að lita með.
Hún kennir námskeið og hlakkar mikið til að deila þeirri ástríðu sem hún hefur fyrir því að prenta jurtir á efni.
Finnið meiri upplýsingar um hana á www.heartfeltbyliz.com eða á facebook, Heartfelt by Liz.

Margrét Jónsdóttir
Ég heiti Margrét Jónsdóttir, ég rek kúa og sauðfjárbú, en að reka Ullarverslunina Þingborg er mitt aðalstarf.
Ég hef verið umkringd handavinnu frá því ég man eftir mér. Móðir mín er mikil handavinnumanneskja og hún bæði prjónaði mikið og saumaði og gerði einnig ýmsa aðra handavinnu, ég lærði góð og vönduð vinnubrögð frá henni og í handavinnu í grunnskóla undir handleiðslu frábærra kennara og hef einnig lært mikið í Þingborgarhópnum. Eins hef ég sótt ýmis námskeið bæði hér heima og erlendis. Ég hef verið hluti af Þingborgarhópnum frá stofnun hans og hef fengist töluvert við það að hanna peysur og fleira og ég gaf út bókina Lopalist árið 2015 ásamt systur minni Önnu Dóru Jónsdóttur. Ég hélt námskeið í uppbyggingu lopapeysunnar á Shetland Wool week árið 2017 og sama námskeið á Swiss Yarn Festival 2023.

Anna Dóra Jónsdóttir
Anna Dóra Jónsdóttir fædd 1962, uppalin á Syðra-Velli í Gaulverjabæjar-hrepp, nú Flóahrepp. Lærði töluvert í handavinnu í uppvextinum undir handleiðslu móður sinnar.
Hún fór í Húsmæðraskólann á Laugarvatni, er menntuð sem skrifstofutæknir. Hefur einbeitt sér að prjónaskap undanfarin ár og þá sérstaklega að prjóna úr lopa, gaf út prjónabókina Lopalist með Margréti Jónsdóttur systur sinni árið 2015.

Marianne Guckelsberger
Áhugasvið mitt eru víkinga og miðalda textílaðferðir eins og landnámsspuni, halasnælduspuni, vattarsaumur og kríl ásamt tilheyrandi áhöldum sem mörgum eru ókunn í dag.
Með því að sameina vísindalegar og sögulegar heimildir með praktíska vinnu gefst glögga mynd af hreint ótrúlegu vinnuframlagi kvenna fyrr á öldum.
Ég hef haldið námskeið í ofangreindum aðferðum í Heimilisiðnaðaskólanum sem og öðrum stofnum bæði hérlendis og erlendis og unnið að endurgerð ýmissa forna textíla, m.a. klæðnaði frá Ketilsstöðum og Herjólfsnesi ásamt fylgihlutum.
Á facebook geng ég undir nafninu Marianne tóvinnukona, þar er hægt að finna myndir af því sem ég geri.

Marled Mader
Ég er menntuð sem grunnskólakennari og hef verið á eftirlaunum í nokkur ár. Í fjörtíu ár hef ég ferðast reglulega til Íslands. Ég hef unnið með ull í þrjátíu ár, ég spinni, lita með náttúrulegum efnum, vefa og vinn með forna vefnaðartækni, sérstaklega þá sem er frá járnsöld og víkingaöld. Ég kenni ýmis námskeið og í gegnum þessa vinnu fann ég Spunasystur, sem ég er mjög þakklát fyrir.

Textílbarinn
Textíl Barinn er hönnunar stúdíó þar sem dúóið Hildigunnur og Hrafnhildur standa vaktina.
Við sérhæfum okkur í því að gefa áður elskuðum textíl nýtt líf. Við endurvinnum, endurhönnum og gerum þannig textílinn aðlaðandi og aðgengilegri.

Þórey Axelsdóttir
Þórey er fædd 1949 austur í Fljótsdal og var þar til tvítugs,flutti þá til Reykjavíkur.
Hún er sjúkraliði og hefur unnið lengstum við það. Þórey hefur haft áhuga á hvers kyns handverki frá unga aldri. Þórey hefur sótt menntun m.a. í Húsmæðraskólanum á Hallormsstað, í Ullarskóla Íslands og ýmis námskeið í Þingborg sem og af öðru samferðafólki.


