Algengar spurningar

Ullarvikan á Suðurlandi verður haldin næst 26. september til 3. október 2026.

Nei, Ullarvikan á Suðurlandi er haldin annað hvert ár. Ullarvikan átti að vera haldin fyrst árið 2020 en Covid-19 breytti því og var henni því frestað til 2021. Svo var hún haldin aftur árið 2022 og var svo árið 2024 og verður annað hvert ár héðan í frá.

Dagskráin fyrir Ullarvikuna á Suðurlandi árið 2026 er í valmyndinni efst á síðunni.

Námskeið, litasýning á sauðfé, markaðsdagur með matarvögnum fyrir utan, prjónakaffi í Félagsheimilinu Þingborg, prjónakvöld með fríum fyrirlestri, opnar vinnustofur og fleira.

Lokað er fyrir bókanir á námskeið en það er hægt að skoða hvaða námskeið verða í boði árið 2026 með því að skoða dagskrána. Skráning á póstlista gefur aðgang fyrr að skráningu á námskeið.

Ullarverslunin Þingborg, Uppspuni – Smáspunaverksmiðja, Feldfé, Hespuhúsið og Spunasystur standa að baki skipulagi Ullarvikunnar.

Netfangið okkar er info@ullarvikan.is en svo er líka hægt að senda okkur skilaboð á samfélagsmiðlum.

att.WjCFkXhXj7OqG-Jqu6bSCXN0zneb851dEPOEn-uUVUM
Shopping Cart
Scroll to Top