Þriðjudagur 29. september – 10:00-13:00
Location: Íslenska Ullarvinnslan, 800 Selfoss
Kristjana Kona
Námskeið er kennt á íslensku og ensku. – Workshop in Icelandic and English.
Á námskeiðinu verður farið yfir það hvernig hægt er að hekla peysu ofan frá og niður með laska. Þátttakendur hekla litla dúkkupeysu til þess að prófa að skipta niður í búk og ermar á þeim tíma sem við höfum. Hægt verður að kaupa jurtalitað tvíband frá Dórubandi í heklaða peysu á staðnum.
Hvað þurfa nemendur að hafa með sér: Garn í léttbandsgrófleika (sirka 100m. á 50gr.) og heklunál í stærð 5 eða 5,5.
Undirbúningur nemenda fyrir tíma: Nemendur þurfa að hafa grunn í hekli. Nauðsynlegt að kunna að gera loftlykkjur, fastalykkjur og stuðla.
Hvað er innifalið í námskeiðgjaldi: Kennslugögn og annað sem þarf fyrir peysuna.
The course will cover how to crochet a sweater from the top down with raglan. Participants will crochet a small doll sweater to try dividing it into a body and sleeves in the time we have. Participants will be able to buy hand dyed yarn from Wool by Dóra on site for the sweater.
What students need to bring: Yarn similar to Lopi light (100m 50gr) and a crochet hook, 5 or 5.5mm
Preparation for workshop: Students need to have a basic understanding of crochet. It is essential to know how to make chain stitches, single crochets, and treble crochets.
What’s included in the fee: Included all materials for workshop.







