Ullarvikupeysa

 

   Stærðir:          XS  S   M  L XL XXL
Yfirvídd í sm:        80 88 95 106 115 123
Ermalengd:     45 46 47 48  49 50
Bolsídd:           38 42 43 44  45 46

Efni og áhöld:
450-450-500-500-500-550 gr Þingborgarlopi í aðallit
50 gr litað Þingborgarband eða lopi í mynstur.
Sokkaprjónar nr 4 og 5
Hringprjónar nr 5, 40, 60 og 80 cm langir
Hringprjónn nr 4 80 sm langur
Á opinni peysu: Heklunál nr. 4
Rennilás eða 8-9 tölur
Prjónafesta: 15 l og 22 umf í sléttu prjóni = 10 x 10 cm
Prjónað er úr plötulopanum tvöföldum. Bolur og ermar eru prjónuð í hring.

Heil peysa.

Bolur: Fitjið upp 120-132-142-158-172-184  l á 80 sm hringprjón nr 4, prj 8-10 sm  brugðningu, sjá mynsturblað. Að loknu stroffi er skipt yfir á 80 sm hringprjón nr 5. Prjónað sl uns bolur mælist 38-46 sm. (Lengd á bol er smekksatriði, mælið viðkomandi og metið bolsídd.)  

Ermar: Fitjið upp 32-36-36-40-40-40 l á sokkaprjóna nr 4. Gerið eins og neðan á peysu. Skiptið yfir á sokkaprjóna  nr 5 þegar stroffi er lokið. Aukið út um 2 l, (1 l eftir fyrstu lykkju og 1 lykkju fyrir síðustu l í umf). Endurtakið aukningu 8-8-8-8-8-9 x upp ermi, með u.þ.b. 8 umf á milli þar til 50-54-54-58-58-60 l eru á prjóninum. Skiptið yfir á stutta hringprjóninn nr. 5 á u.þ.b. miðri ermi. Prjónið uns ermi mælist 44-52 sm. (Mælið handlegg og metið lengd)

Axlastykki: Sameinið nú bol og ermar á 80 sm hringprjóninn nr 5. Setjið 5-5-5-5-6-6 síðustu l og 5-5-5-6-6-5 fyrstu l af ermum á prjónanælu. Prj fyrri ermina við 40-44-44-47-46-49 l, setjið næstu 10-10-10-11-12-11 l af bol á prjónanælu.  Prjónið næstu 50-56-61-68-74-81 l af bol og setjið næstu 10-10-10-11-12-11 l á prjónanælu. Prjónið seinni ermina við og gerið eins og með hina og að síðustu 50-56-61-68-74-81 af bol. Þá eru 180-200-210-230-240-260 l á prjóninum. Prj mynstur eftir teikningu. Byrjið þar sem endurtekningarmerki byrjar í mynsturhluta. Notið styttri hringprjóna eftir því sem lykkjum fækkar. Þegar mynstri lýkur er tekið úr aukalega þar til 68-72 l eru eftir á prjóninum. Þá er skipt á 40 cm hringprjón nr 4 og prj kraga 4 umf með sama prjóni og á stroffi og að síðustu 4 umf sléttar.  Fellið laust af. Gangið vel frá öllum endum og lykkjið saman undir höndum.

Opin peysa

Bolur:
Fitjið upp 124-136-146-162-176-188 l á prj nr 4. Prj brugðningu 8-10 sm, sjá mynsturblað. Tengið saman í hring og fitjið upp 2 aukalykkjur sem prj eru brugðnar upp að hálsmáli. Skiptið á 80 sm hringprjón nr 5. Prjónið sl uns bolur mælist 38-46 sm. (Mælið viðkomandi og metið bolsídd)  Geymið bolinn. Gerið mittissnið á peysu ef vill.

Ermar:
Fitjið upp 32-36-36-40-40-40 l á sokkaprjóna nr 4. Prjónið stroff eins og neðan á peysu. Skiptið yfir á sokkaprjóna  nr 5 þegar stroffi er lokið. Aukið út um 2 l, (1 l eftir fyrstu lykkju og 1 lykkju fyrir síðustu l í umf). Endurtakið aukningu 8-8-8-8-8-9 x upp ermi, með u.þ.b. 8 umf á milli þar til 50-54-54-58-58-60 l eru á prjóninum. Skiptið yfir á stutta hringprjóninn nr. 5 á u.þ.b. miðri ermi. Prjónið uns ermi mælist 44-52 sm. (Mælið handlegg og metið lengd)

Axlastykki: Sameinið nú bol og ermar á 80 sm hringprjóninn nr 5. Setjið 5-5-5-5-6-6 fyrstu og 5-5-5-6-6-6 síðustu l á ermi á prjónanælu. Byrjið við brugðnu l að framan. Prj 26-29-31-35-38-41 af bol, setjið 10-10-10-11-12-12 l af bol á prjónanælu, síðan er ermi prj við, 40-44-44-47-46-49 l. Prj 52-58-62-70-76-82 l af bol og svo hina ermina eins og þá fyrri og setjið 10-10-10-11-12-12 l af bol á prjónanælu og prjónið svo 26-29-31-35-38-41 l af bol að framan. Þá eru á prj 184-204-214-234-244-264 l og að auki brugðnu lykkjurnar tvær.  Í öllum stærðum verður að fækka um 1 l áður en byrjað er á mynstri. Prj mynstur eftir teikningu. Takið aukalega úr efst áður en kragi er prjónaður þar til 68-72 l eru eftir. Fellið af lykkjurnar 2 sem voru prj brugðnar upp bolinn. Prj kraga eins og á heilli peysu en prjónið hann fram og til baka.

Gangið vel frá öllum endum og lykkjið saman undir höndum.

Listar:
Saumið í vél með beinu þéttu spori og samlitum tvinna í brugðningu að framan sitt hvoru megin, sem næst slétta prjóninu. Gott er að sauma tvisvar hvoru megin. Klippið upp á milli saumanna. Snúið réttunni á peysunni að ykkur og notið heklunálina til að taka upp lykkjur í hneppulista þvert á prjónið. Krækið í bandið með heklunálinni í gegnum lykkjurnar, en sleppið alltaf fjórðu hverri umferð, það er ágætis þumalputtaregla, þá er listinn passlega langur. Færið lykkjurnar jafnóðum yfir á hringprjón nr 4, 80 sm langan. 

Prjónið stroff, 2 umf ef það á að setja rennilás en 5-6 umf ef setja á tölur og gerið þá hnappagöt með jöfnu millibili á annan boðunginn. Passið að affellingin sé mátulega strekkt.  Til að fela sárið innan á eftir saumaskapinn, er gott að hekla eina umf af fastahekli yfir það og varpa því svo niður með einföldu spori. Mælt er fyrir rennilás eftir þvott og hafður 4-5 sm styttri en boðungurinn mælist. Þræðið hann á og passið að mynstur standist á. Ef hann er saumaður á í saumavél er gott að sauma hann í sömu átt beggja megin og byrja þar sem mynstur byrjar og sauma að hálsmáli og eins þegar saumað er niður. Með þessari aðferð gengur betur að láta mynstur stemma en ef saumað væri sitt í hvora áttina.

Þvottur:
Þvoið flíkina í volgu vatni með góðri ullarsápu eða sjampói. Skolið vel og vindið svo í hálfa mínútu í þvottavél. Mikilvægt er að vélin fari strax að vinda, (þær eru misjafnar að þessu leyti) en sé ekki að veltast með flíkina fyrst, þá getur hún þófnað. Leggið peysuna á handklæði til þerris.